15 Maí 2014 12:00

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að fimm piltar á aldrinum 17-19 ára sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Þeir voru handteknir í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. maí, en piltarnir eru grunaðir um að hafa nauðgað 16 ára stúlku í samkvæmi í austurhluta borgarinnar um þar síðustu helgi. Lögreglan hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar.