23 Janúar 2013 12:00

Karl á sjötugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, eða til 20. febrúar. Hann unir úrskurði héraðsdóms.

Maðurinn hefur verið í haldi lögreglu frá 8. janúar sl. en þá var hann færður til yfirheyrslu vegna rannsóknar á kynferðisbrotum. Daginn eftir var hann úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.