10 September 2012 12:00

Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Reykjavík fyrir helgina en í bíl þeirra fundust um 100 grömm af amfetamíni. Hnúajárn var einnig í bílnum og var það sömuleiðis haldlagt. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála.