13 Maí 2020 14:19

Þrír karlar voru í fyrradag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald, eða til 25. maí, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á umfangsmiklu máli er snýr að skipulagðri brotastarfsemi. Lagt hefur verið hald á rúmlega 11 kg af amfetamíni, en það fannst við húsleit í fjölbýlishúsi í umdæminu. Lögreglan hefur einnig tekið í sína vörslu töluvert af búnaði, sem talið er að hafi verið notað við framleiðsluna, og fjármuni, en nokkrar húsleitir hafa verið framkvæmdar vegna málsins. Söluvirði fíkniefnanna (fullunnið) er talið vera um 70 milljónir króna.

Rannsókn málsins miðar vel, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Lögreglan minnir á upplýsingasímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.