15 Maí 2012 12:00

Lögreglan lagði hald á amfetamín og hnífa við húsleit í austurborginni í dag. Hún tók einnig í sína vörslu talsvert af íblöndunarefnum og sterum. Húsráðandinn, karl á fertugsaldri, er meðlimur í Outlaws. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum aðstoðaði við húsleitina. Aðgerðin er liður í samvinnu lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sem beinist gegn skipulagðri brotastarfsemi, m.a. af hendi alþjóðlegra vélhjólahópa.