20 September 2013 12:00

Lögreglan lagði hald á afsagaða haglabyssu og fíkniefni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gær. Um var að ræða bæði kannabisefni og ætlað amfetamín, en fíkniefnin var að finna á nokkrum stöðum í íbúðinni. Á sama stað var einnig lagt hald á muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir á vettvangi í þágu rannsóknarinnar.