10 September 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á töluvert magn af sterum við húsleit í Kópavogi í síðustu viku. Á sama stað fannst einnig allnokkuð af skotfærum sem og búnaður til lyfjaframleiðslu. Var það sömuleiðis tekið í vörslu lögreglu. Karl á fimmtugsaldri, sem var handtekinn á vettvangi, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.