1 September 2022 14:02

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi á um 5.000 töflum af OxyContin. Tollurinn fann lyfið, sem barst hingað í póstsendingu, en um er að ræða 80 mg töflur. Í framhaldinu voru tveir menn handteknir í aðgerðum lögreglu vegna málsins og annar þeirra úrskurðaður í gæsluvarðhald, eins og áður sagði, en hinn er laus úr haldi. 

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.