27 Janúar 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði landaframleiðslu í húsi í miðborginni í nótt. Lagt var hald á tæplega 150 lítra af gambra sem og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Húsráðandi, karl um sextugt, játaði aðild sína að málinu.