16 Maí 2022 15:17

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að færa hættustig á landamærum vegna yfirálags niður á óvissustig.

Þann 8.mars var virkjuð viðbragðsáætlun á hættustigi vegna yfirálags á landamærum vegna einstaklinga sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Nú þegar móttökukerfið fyrir einstaklinga hefur verið eflt á öllum stigum, með samhentu átaki, og fyrir séð er að efld geta kerfisins muni höndla vel þann fjölda sem hingað sækir miðað við núverandi aðstæður hefur ríkislögreglustjóri ákveðið að færa viðbúnaðarstig niður á óvissustig af hættustigi.