20 Desember 2006 12:00

Í dag rennur út gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem eru grunaðir um kynferðisbrot og setið hafa í varðhaldi undanfarið. Lögreglan í Reykjavík hefur ekki farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds yfir þeim.

Annar þeirra hefur setið í gæsluvarðhaldi í viku en hann var kærður fyrir brot gagnvart ungri stúlku. Hann var látinn laus í dag þar sem skilyrði gæsluvarðhalds eru ekki lengur fyrir hendi.

Hinn hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálfan mánuð, sakaður um ofbeldis- og kynferðisbrot gagnvart konu. Hann verður í dag færður til afplánunar á þriggja mánaða fangelsisdómi.

Báðir mennirnir voru nýverið dæmdir til fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot. Annar í 3 ár en hinn í 5 ár.