8 Júní 2019 10:00

Íslendingar og Albanir mætast í knattspyrnulandsleik á Laugardalsvellinum í dag, en viðureign þjóðanna hefst kl. 13. Búist er við fjölmörgum áhorfendum og eru þeir knattspyrnuáhugamenn, sem ekki ætla að nota strætó til að komast á völlinn, minntir á að leggja löglega. Þetta er þriðji leikur landsliðsins í undankeppni EM, en Ísland og Albanía eru bæði með 3 stig í riðlinum nú þegar tveimur umferðum er lokið og fram undan er því örugglega hörkuleikur. Áfram Ísland!