12 Mars 2017 11:07

Leit að Artur Jarmoszko, sem saknað hefur verið frá því um síðustu mánaðamót, er við það að hefjast í vesturbæ Kópavogs, en vettvangur leitarinnar tekur mið af upplýsingum úr símagögnum sem lögreglan hefur aflað. Lögreglan hefur fundað með Landsbjörgu og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út til aðstoðar.

Síðast var vitað um ferðir Arturs í miðborg Reykjavíkur seint á þriðjudagskvöldinu 28. febrúar sl., líkt og fram kom á mynd í eftirlitsmyndavél, en nú er talið, vegna framkomna símagagna, að hann hafi farið til Kópavogs í framhaldinu og verið þar á ferð snemma aðfaranætur miðvikudagsins 1. mars.

Artur, sem er 25 ára og grannvaxinn, dökkhærður með stutt hár, 186 sm á hæð og með græn augu, er pólskur, en hefur búið á Íslandi um allnokkurt skeið. Talið er að hann sé klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, bláar gallabuxur og hvíta strigaskó.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Arturs, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.