13 Mars 2017 10:25

Leit að Arturi Jarmoszko, sem saknað hefur verið frá því um síðustu mánaðamót, hefur enn ekki borið árangur, en unnið er að málinu hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu af fullum krafti. Í því felst m.a. að afla gagna og yfirfara þau. Þessu verður framhaldið í dag, en áhersla er lögð á að kortleggja ferðir Arturs. Málið er rannsakað sem mannshvarf og ekki er grunur um refsiverða háttsemi.

Leit að Arturi heldur áfram í dag, en kallaðir verða til leitarhópar frá Landsbjörgu og fylgja þeir vísbendingum sem hafa borist í málinu. Þyrla Landshelgisgæslunnar mun enn fremur aðstoða við leitina í dag. Fólk er beðið um að svipast um í sínu nærumhverfi, t.d. í vinnuskúrum, geymslum og útihúsum.

Artur, sem er 25 ára og grannvaxinn, dökkhærður með stutt hár, 186 sm á hæð og með græn augu, er pólskur, en hefur búið á Íslandi um allnokkurt skeið. Talið er að hann sé klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, bláar gallabuxur og hvíta strigaskó. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Arturs, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.