21 Október 2021 11:25

Skráð voru 808 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í september og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir september 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði örlítið á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um níu prósent fleiri tilkynningar um þjófnaði en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 106 tilkynningar um ofbeldisbrot í september. Níu tilvik voru skráð þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi en ekki hafa verið skráð jafn mörg tilvik síðan í maí 2020.

Álíka margar tilkynningar bárust um heimilisofbeldi í september og í ágúst en alls voru skráðar 56 tilkynningar í september. Það sem af er ári hafa borist um 11 prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust 21 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í september og fjölgaði þessum beiðnum töluvert miðað við fjölda beiðna síðustu þrjá mánuði á undan..

Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð í september. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna voru álíka margar og í ágúst en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði á milli mánaða.

Í ágúst voru skráð 650 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 29 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.