23 Nóvember 2023 10:49

Alls bárust 790 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október. Um helmingur brotanna voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Flestar tilkynningar um innbrot í október voru innbrot í fyrirtæki og/eða stofnanir.

Alls bárust 133 tilkynningar um ofbeldisbrot í október. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði á milli mánaða og fóru úr 45 tilkynningum í september í 72 tilkynningar í október. Það sem af er ári hafa borist um átta prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í október voru skráð átta tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 43 tilkynningar um kynferðisbrot í október, um 19 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í október.

Alls bárust 37 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í október. Ekki hafa borist jafn margar beiðnir um leit að börnum og ungmennum síðan í mars 2018. Það sem af er ári hafa borist um 17 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru skráð þrjú stórfelld fíkniefnabrot í október. Heilt yfir hafa þó verið skráð um 27 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði töluvert á milli mánaða á meðan tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í október voru skráð 734 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) á höfuðborgarsvæðinu. Það sem af er ári hafa verið skráð um sjö prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

Skýrsluna er hægt að nálgast hér að neðan: