17 Nóvember 2022 12:40

Karlmaður lést þegar kviknaði í húsbíl við Lónsbraut í Hafnarfirði snemma í morgun, en tilkynning um málið barst um sexleytið. Lögreglan og slökkvilið fóru strax á staðinn, en bíllinn var alelda þegar að var komið. Tæknideild lögreglu annast vettvangsrannsókn, þ.e. eldsupptök, en hinn látni var einn í bílnum þegar eldurinn kom upp.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.