1 Júlí 2020 17:07

Fólkið sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag hét Finnur Einarsson, 54 ára, og Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, 53 ára. Þau voru sambýlisfólk, búsett í Garðabæ, og láta eftir sig fjögur, uppkomin börn.