23 Apríl 2012 12:00

Sautján ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Pilturinn var handtekinn í Kópavogi um helgina eftir að lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás. Þar hafði hann veitt konu á þrítugsaldri áverka með hnífi.