6 Mars 2012 12:00

Karl á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Manninum er jafnframt gert að undirgangast geðrannsókn en hann var handtekinn á lögmannsstofu í austurborginni í gærmorgun þar sem hann veitti tveimur starfsmönnum áverka með eggvopni. Annar þeirra er alvarlega slasaður.