22 Mars 2008 12:00

Fjórir karlar voru handteknir síðdegis eftir að til átaka kom í Breiðholti. Þar réðust um tíu menn vopnaðir bareflum inn í íbúð en ekki er ljóst hvað þeim gekk til. Í íbúðinni var fyrir hópur manna og kom til átaka eins og áður sagði. Í kjölfarið voru síðan sex fluttir til aðhlynningar á slysadeild en enginn þeirra er þó í  lífshættu. Ljóst er að árásin var mjög gróf. Allir hlutaðeigendur eru af erlendu bergi brotnir. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Það var lögreglan á Suðurnesjum sem handtók fjórmenningana, sem nú eru í haldi, en þeir voru stöðvaðir á Strandarheiði á Reykjanesbraut.