7 Október 2005 12:00

Í tengslum við rannsókn alvarlegrar líkamsárásar sem átti sér stað í Garðabæ aðfaranótt sunnudagsins 2. október, voru þrír menn hnepptir í gæsluvarðhald, tveir til miðvikudagsins 5. október og hefur nú verið sleppt, en sá þriðji til föstudagsins 7. október. Lögregla hefur krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir honum og verður sú krafa tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness síðar í dag.