21 Febrúar 2020 11:32

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú líkamsárás sem átti sér stað í Hamraborg í Kópavogi um kvöldmatarleytið á mánudaginn í síðustu viku, en þar veittist hópur unglingspilta að pilti á líku reki. Þegar lögreglan kom á vettvang voru árásarmennirnir á bak og burt, en hún hitti fyrir þann sem fyrir árásinni varð og var viðkomandi fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en um grófa árás var að ræða. Við rannsókn málsins er m.a. stuðst við myndefni af árásinni, en lögreglan telur sig hafa nokkuð skýra mynd af atburðarásinni.

Þeir sem urðu vitni að árásinni, eða búa yfir vitneskju henni tengdri, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið heimir@lrh.is

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu, en málið er unnið með aðkomu barnaverndaryfirvalda.