30 Apríl 2020 22:25

Unglingsstúlka hefur verið færð til vistunar á viðeigandi stofnun eftir að alvarlegt atvik varð í Kópavogi snemma í kvöld. Þar var unglingspilti veittir áverkar með eggvopni, en nú liggur fyrir að það var af völdum stúlkunnar. Mikill viðbúnaður var vegna málsins, en í fyrstu var talið að ókunnugur maður hefði staðið að árásinni, en svo reyndist ekki vera. Líðan piltsins er eftir atvikum, en hann er ekki lífshættulega slasaður.

Málið er unnið með aðkomu barnaverndaryfirvalda.