27 Febrúar 2020 16:53

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á líkamsárás í Hamraborg í Kópavogi í þar síðustu viku, en þar veittist hópur unglingspilta að pilti á líku reki, miðar mjög vel. Um grófa árás var að ræða, líkt og fram kom í fyrri tilkynningu lögreglu, en margir hafa verið kallaðir til vegna rannsóknarinnar. Vegna umfjöllunar um málið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum vill lögreglan taka fram að rannsókn hennar hefur leitt í ljós að árásin tengdist ekki kynþætti brotaþola. Því er ekki um hatursglæp að ræða svo því sé haldið til haga.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina, en málið er unnið með aðkomu barnaverndaryfirvalda.