20 Maí 2011 12:00

Tveir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri, hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Mennirnir voru handteknir í Hafnarfirði um miðja síðustu viku eftir að lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Sá sem fyrir henni varð er karl á þrítugsaldri en hann var með áverka víða á líkamanum og er m.a. nefbrotinn. Talið er að honum hafi verið haldið nauðugum í meira en hálfan sólarhring og að barsmíðarnar hafi farið fram á jafnvel fleiri en einum stað. Á dvalarstað árásarmannanna var lagt hald á bæði fíkniefni og ýmis barefli. Þeir og þolandinn eru allir taldir tengjast  ákveðnum vélhjólaklúbbi.