17 Janúar 2011 12:00

Þrír til viðbótar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fólskulegri líkamsárás í Kópavogi aðfaranótt sunnudags. Um er að ræða þrjá karla en þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri. Fyrr í dag voru karl og kona úrskurðuð í gæsluvarðhald til 21. janúar vegna þessa sama máls. Þau eru bæði á þrítugsaldri.