25 Ágúst 2013 12:00

Tvær líkamsárásir hafa verið tilkynntar til lögreglu eftir menningarnótt þegar þetta er skrifað og verður það að teljast lítið. Báðar eru taldar minniháttar, en þær áttu sér stað í miðborginni í nótt. Þess utan var lögreglan kölluð að húsi í borginni í gærkvöld, en þar var um heimilisofbeldi að ræða. Tveir voru handteknir í íbúð í húsinu, en gera þurfti að sárum annars þeirra eftir átökin.