23 Júní 2018 13:01

Lík manns sem leitað hefur verið að í Ölfusá frá því þann 20. maí s.l. fundust fyrir landi Arnarbælis í Ölfusi í morgun.  Það voru menn á göngu við ána sem fundu líkið og tilkynntu um það til lögreglu.  Björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Árborgar aðstoðuðu lögreglu  við  vinnu á vettvangi.