2 Febrúar 2010 12:00

Það hefur vakið sérstaka athygli lögreglu undanfarið að ljósabúnaði margra ökutækja er ábótavant. Margir hafa verið stöðvaðir vegna þessa en ýmist vantaði ljós að framan eða aftan en ökumönnunum var góðfúslega bent á að skipta um perur, öryggi eða annað það sem bilað var. Ökumenn eru hvattir til að ganga úr skugga um að ljósin séu í lagi enda er hér um mjög mikilvægt öryggisatriði að ræða. Þau þurfa einfaldlega alltaf að vera í lagi og ekki síst í skammdeginu.