22 September 2014 12:00

Þrjátíu ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina en ljósabúnaði ökutækja þeirra var áfátt. Ýmist vantaði ljós að framan eða aftan en ökumönnunum var góðfúslega bent á að skipta um perur, öryggi eða annað það sem bilað var. Sem fyrr hvetur lögreglan ökumenn til að huga sérstaklega að ljósabúnaðinum. Hann þarf alltaf að vera í lagi og ekki síst í skammdeginu.