1 Ágúst 2019 16:13

Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir vitnum að meintri líkamsárás sem varð á eða við göngustíg á Selfossi við Hólatjörn, þann 30.07.2019 um kl. 00:45, en þar er karlmaður talinn hafa veist að konu. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni að hafa samband í síma 444 2000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sudurland@logreglan.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á Suðurlandi.

Áverkar konunnar sem talin er hafa orðið fyrir árásinni eru taldir minniháttar en engu að síður mikilvægt að upplýsa um málsatvik eins og kostur er.