12 Október 2022 16:18

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Halla Bergþóra Björnsdóttir, tók við viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2022 á ráðstefnu verkefnisins sem fram fór í dag. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), í samstarfi við hagaðila. Viðurkenningarnar eru veittar til þeirra fyrirtækja og stofnana sem náð hafa markmiðmiðum um sem jafnast hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er stolt af þessari mikilvægu viðurkenningu og tekur undir einkunnarorð ráðstefnunnar – Jafnrétti er ákvörðun! Meðfylgjandi er mynd af Höllu Bergþóru með viðurkenningarskjalið.