25 Maí 2007 12:00

Á dögunum stálu tveir ógæfumenn biblíu og sálmabók úr Krísuvíkurkirkju en þeir voru handteknir fyrir austan fjall skömmu eftir þjófnaðinn. Bækurnar voru síðan sendar á svæðisstöðina í Hafnarfirði og í dag gengu tveir lögreglumenn á fund sóknarprestsins þar og komu þeim til skila. Presturinn var að vonum ánægður með að fá biblíuna og sálmabókina aftur í hendur en guðsþjónusta verður í Krísuvíkurkirkju á hvítasunnudag klukkan 14. Því má kannski segja að lögreglan hafi bjargað messuhaldi. Fyrir greiðann var lögreglumönnunum tveimur síðan boðið til bænastundar. Að henni lokinni héldu laganna verðir áfram störfum sínum léttir í lund enda búnir að fá andlega upplyftingu hjá prestinum.