25 September 2012 12:00

Lögreglan hafði fyrir helgina afskipti af þrítugum karlmanni sem þekktur er fyrir sölu á fíkniefnum. Í íbúð mannsins í miðborginni  fundust nokkrar tegundir af fíkniefnum sem lögreglan telur að hafi verið ætluð til sölu. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku.