8 Desember 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að leigubílstjóra sem hún þarf að hafa tal af vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu, en lýst var eftir manninum í gær. Sá var að störfum í miðborginni aðfaranótt föstudagsins 25.  nóvember sl. og ók þaðan þremur farþegum, karli og tveimur konum, í Kórahverfið í Kópavogi. Nú er talið sennilegast að fólkið hafi farið í leigubílinn skammt frá pylsuvagninum í Tryggvagötu (Bæjarins bestu).

Lögreglan hvetur leigubílstjórann til að gefa sig fram en vitnisburður hans getur haft mikla þýðingu í umræddu máli. Þá eru þeir sem kunna að geta veitt upplýsingar um áðurnefndan leigubílstjóra vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is