21 Janúar 2021 16:09

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Önnur tilkynning barst svo lögreglu í morgun, en í henni var einnig greint frá mjög svo óviðeigandi háttsemi karlmanns og var vettvangurinn sá sami, þ.e. við Seljaskóla. Talið er líklegt að um sama manninn sé að ræða.

Maðurinn er sagður hár og grannur og vera í kringum þrítugt. Hann var klæddur í svartar gallabuxur, úlpu og með svarta húfu og grímu.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið, eða telja sig vita hvaða maður á í hlut, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu. Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.