15 Nóvember 2017 09:06

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til meðferðar og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Þeir sem vita hver maðurinn er, eða hvar hann er niðurkominn, eru enn fremur beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.