25 Júlí 2018 11:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns silfurlitaðrar Audi fólksbifreiðar, sem lenti í árekstri við ljósgráan Peugeot á Reykjanesbraut í Hvassahrauni skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld, en umferðaróhappið var tilkynnt til lögreglu kl. 23.47. Peugeot bifreiðinni, sem er mikið skemmd, var ekið vestur Reykjanesbraut þegar áreksturinn varð og hafnaði hún utan vegar. Tveir voru í bílnum og voru báðir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Ökumaðurinn Audi bifreiðarinnar skeytti í engu um áreksturinn og ók rakleiðis af vettvangi, en talið er að ökutækið sé með evrópskt bílnúmer.

Þeir sem búa yfir vitneskju um silfurlitaða Audi bílinn og ökumann hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið  helgig@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en lögreglan hvetur jafnframt ökumanninn til að gefa sig fram.