7 Maí 2008 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem framdi rán í útibúi Landsbankans á Bæjarhrauni í Hafnarfirði á tíunda tímanum í morgun. Hann var vopnaður hnífum og ógnaði starfsfólki og hafði síðan á brott með sér eitthvað af fjármunum. Maðurinn var klæddur í hettupeysu og huldi andlit sitt með klúti. Talið er að hann sé á aldrinum 17-25 ára en meðfylgjandi myndir voru teknar af manninum í bankanum í morgun.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.