26 Mars 2024 10:29

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja þjófa, sem brutust inn í bifreið í Hamraborg í Kópavogi á tíunda tímanum í gærmorgun og höfðu á brott með sér verulega fjármuni. Þjófarnir voru á dökkgráum Toyota Yaris, en á bifreiðinni voru tvær mismunandi númeraplötur, þ.e. NMA 87 að aftan og SLD 43 að framan en báðum þessum skráningarnúmerum hafði verið stolið af öðrum ökutækjum. Lýst var eftir bifreiðinni í gær, en hún er ófundin.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir bílsins, eða þjófana, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 112. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is