26 Mars 2024 17:21

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar  mannanna, sem hér sjást á ferð í dökkgráum Toyota Yaris, í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Ef einhver þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hin sömu vinsamlegast beðin um að hringja í lögregluna í síma 112, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Þótt andlit mannanna sjáist aðeins að hluta má ætla að einhver geti samt borið kennsl á þá.