10 Nóvember 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af piltunum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Dalvegi 18 í Kópavogi í síma 444-1000. Ef einhverjir þekkja til piltanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is