11 September 2006 12:00

Lögreglan í Reykjavík leitar nú tveggja ungra manna sem eru aðilar að hnífstungumáli í Select við Suðurfell aðfaranótt sunnudags, 10. september. Góðar myndir náðust af báðum þessum mönnum í öryggismyndakerfi Select.

Lögreglan skorar á þessa menn að gefa sig fram tafarlaust. Síminn hjá lögreglunni í Reykjavík er 444-1000.