28 Ágúst 2018 10:19

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að vitnum að atviki þar sem rauðri bifreið var ekið á stúlku, á göngusvæði Laugavegs, þannig að vinstri handleggur hennar fór utan í bílinn. Tilvikið átti sér stað þann 8. ágúst s.l. líklega á milli 17:30 – 18:00.  Sá sem ók bifreiðinni, eða þeir sem kunna að hafa orðið vitni að atvikinu eru beðnir að hafa samband við Lögreglu gegnum símann 444-1000, netfangið gisli.arnason@lrh.is eða einkaskilaboð á fésbókarsíðu embættisins: www.facebook.com/logreglan