6 Mars 2024 12:04

Þrír karlar og þrjár konur eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir umfangsmiklar aðgerðir í gærdag, en í dag verður krafist vikulangs gæsluvarðhalds yfir þeim öllum á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Eins og fram hefur komið var tilefni aðgerðanna rökstuddur grunur um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og grunur um skipulagða brotastarfsemi. Aðgerðirnar, sem fóru fram á höfuðborgarsvæðinu og víðar, stóðu yfir í allan gærdag og gengu vel fyrir sig. Á annað hundrað manns tóku þátt í þeim, þar af um áttatíu starfsmenn lögreglu og nokkur fjöldi starfsfólks stofnana og félagasamtaka sem veittu liðsinni við aðgerðirnar. Samtals voru framkvæmdar um tuttugu og fimm húsleitir.

Við rannsókn málsins hefur verið rætt við töluvert af fólki sem grunsemdir eru um að séu þolendur mansals.