25 Apríl 2003 12:00

Í tilefni af 200 ára afmæli hinnar íslensku einkennisklæddu lögreglu verður lögreglustöðin í Hafnarfirði opin almenningi á morgun, laugardaginn 26. apríl frá kl. 11:00 til 17:00. 

Gestum verður boðið að skoða einkennisbúninga lögreglu, lögreglubíla og önnur tól og tæki sem lögreglan notar við störf sín.  Einnig geta gestir fengið fingurfar á þar til gert eyðublað.

Lúlli löggubangsi verður  einnig á lögreglustöðinni til skemmtunar fyrir yngstu gestina. 

Léttar veitingar verða á boðstólnum fyrir gesti, bæði yngri og eldri.