30 Apríl 2015 10:31

Lögreglumessa verður haldin í Laugarneskirkju í Reykjavík á morgun, 1. maí, kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari en ræðumaður er Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og fyrrverandi lögreglumaður. Lögreglukórinn syngur undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar en organisti er Bjarni Jónatansson. Lögreglukórinn, sem mun jafnframt bjóða upp á örkonsert í kirkjunni kl. 10.45, hvetur sérstaklega lögreglumenn, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk í lögreglunni til að fjölmenna og taka þátt í þessum hátíðlega viðburði. Að lokinni messu verður léttur hádegisverður.

Lögreglukórinn