8 Desember 2008 12:00

Eftir uppákomuna í Alþingishúsinu í dag kom hópur fólks að lögreglustöðinni við Hverfisgötu og leitaði svara við ýmsum spurningum. Fólkinu var boðið í upplestrarsal lögreglunnar og þar svöruðu Stefán Eiríksson lögreglustjóri og Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn spurningum þeirra eftir því sem best þeir gátu. Fór þetta allt saman mjög vel fram.

Eins og áður hefur komið fram voru sjö manns handteknir þegar mótmælendur fóru inn í Alþingishúsið í dag. Þeir voru færðir til skýrslutöku á lögreglustöð.