17 Október 2022 14:36

Eftir fund með náttúruvársérfræðingum Veðurstofu Íslands er það mat lögreglunnar á Suðurlandi að aflétta beri tímabundinni lokun fyrir ferðir að Kötlujökli sem sett var á í gær eftir að aukin jarðskjálftavirkni í og við katla, í Mýrdalsjökli,  á vatnasviði Múlakvíslar gerði vart við sig.   Dregið hefur úr skjálftavirkni á ný og mælingar á gasmengun í dag gefa ekki tilefni til áframhaldandi lokunar.   Brugðist verður við og lokað verði breyting á aðstæðum eða skjálftavirkni eftir nánara mati sérfræðinga.

Þá er því beint til ferðaþjónustuaðila að skynsamlegt er að útbúa leiðsögumenn með gasmælum og að hópar yfirgefi svæðið strax ef breytingar eru að mælast.